• Gott fólk - Einar
    Jun 28 2023

    Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingingur rekur Veðurvaktina, sem býður upp á veðurþjónustu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og opinbera aðila í ráðgjöf og úrvinnslu flestu því sem viðkemur veðri og veðurfari. Einar er stofnandi Bliku og hefur um árabil frætt landsmenn og gesti okkar um veður og veðurfar. Eftir 16 ára starf hjá Veðurstofunni fór hann í eigin rekstur og er með afar skemmtilega innsýn í svokallað Giggumhverfi og samfélagslega ábyrgð. Hvernig stjórnar þú þínu innra veðri og virkjar vinda deilihagkerfisins – Njótið Gott fólk!

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    25 Min.
  • Gott fólk - Cheryl
    Mar 28 2023

    Cheryl Smith hefur starfað með leiðtogateymum í yfir 15 löndum í fimm heimsálfum. Hún er frumkvöðull á sviði markþjálfunar og hefur vottað vel á þriðja hundrað íslenskra markþjálfa við HR í um 40 heimsóknum til Íslands. Hún er einn af 50 fyrstu markþjálfum til að öðlast MCC viðurkenningu ICF (International Coach Federation). Cheryl starfað við markaðssetningu og stjórnun hjá IBM og vann hörðum höndum við að markaðsetja og selja fyrstu PC tölvurnar. Hún hefur þróað og þjálfað á stjórnendanámskeiðum um árabil og nýtir víðtæka reynslu úr viðskiptalífi, háskólastarfi, ferðalögum og samtölum við fólk um allan heim. Cheryl er með meistaragráðu í stjórnun og þjálfun (e. Leadership and Training) frá Royal Roads háskólanum í Victoria, Kanada. Hún er jafnframt kennari við háskólann. Cheryl var aðstoðarforstjóri hjá Corporate Coach U og stofnaði Leadscape Learning Inc.

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    33 Min.
  • Gott fólk - Ingibjörg Ösp
    Mar 14 2023

    Ingibjörg Ösp hefur látið sig varða og haft veruleg áhrif á grunnstoðir íslensks samfélags í ábyrgðarstörfum sínum á sviði samkeppnishæfni, mennta- og mannauðsmála hjá Samtökum atvinnulífisins og Samtökum iðnaðarins. Framlag hennar sem ráðgjafi mótast meðal annars af víðtækri stjórnunarreynslu sem framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar, Menningarhússins Hofs og Leikfélags Akureyrar. Ingibjörg brennur fyrir mati á raunfærni og lífstíðarlærdómi og mikilvægu hlutverki atvinnulífsins í þróun hæfni og nýrrar þekkingar.

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    39 Min.
  • Gott fólk - Héðinn
    Feb 28 2023

    Héðinn Unnsteinsson er hreyfiafl til bættrar andlegrar- og lýðheilsu og hefur haft afgerandi áhrif á viðhorf þjóðar til mikilvægra málaflokka m.a. á sviði geðheilbrigðisþjónustu. Héðinn hefur starfað um árabil sem stefnumótunarsérfræðingur m.a. hjá forsætisráðuneytinu, heilbrigðisráðuneytinu og alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) og deilir hér afar verðmætu sjónarhorn á framfarir og mikilvægar umbætur í opinberri þjónustu. Héðinn hefur einstaka innsýn í áhrif þjónandi forystu, stefnumótunar og menningar vinnustaða og samfélaga. Hann hefur um árabil starfað sem formaður Geðhjálpar og deilir með hlustendum mikilvægum áherslum í rekstri félagasamtaka í 3ja geiranum. Ástríða, fagmennska og þrautseigja Héðins birtist lesendum og leikhúsgestum með glöggum hætti í sjálfsævisögulegri bók hans "Vertu Úlfur" og forganga hans er okkur öllum stöðug hvatning.

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    46 Min.
  • Gott fólk - Skjöldur
    Feb 6 2023

    Skjöldur Sigurjónsson, stórkaupmaður frá Asparfelli, er einn af athafnamönnum Íslands og rekur sem kunnugt er Ölstofuna og Herrafataverzlun Kormáks og Skjaldar. Farsæl uppbygging vörumerkis um áratugaskeið er ekki sjálfgefinn veruleiki í íslenskri smásölu - en næmni þeirra vinanna fyrir fólki, vörum, þjónustu, markaðssetningu og rekstri er lærdómur fyrir okkur öll. Er vöxtur verslunarinnar og væntanlegur útflutningu á íslensku tweedi byggð á heppni? Eða liggur að baki ítarleg greiningarvinna á niche markaði og vönduð stefnumótunarvinna um concept og hönnun. Hvar liggja töfrarnir í rekstri Kormáks og Skjaldar?

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    30 Min.
  • Gott Fólk - Ragna
    Jan 31 2023

    Ragna Árnadóttir er skrifstofustjóri Alþingis, fyrrverandi fagráðherra og fyrrverandi aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar - fyrst íslenskra kvenna. Ragna hefur sem embættismaður, ráðherra og í ábyrgðarmiklum stjórnunarstörfum í atvinnulífinu, opinberri þjónustu og nú síðast í stjórn Alþjóða rauða krossins áunnið sér traust og reynst vera hreyfiafl breytinga. Hvaða nálgun forgöngukonunnar Rögnu ætlar þú að virkja til að vinna að farsælum umbótum í þínu lífi og starfi?

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    41 Min.
  • Gott fólk - Magnús Geir
    Jan 8 2023

    Magnús Geir er Þjóðleikhússtjóri og hefur verið farsæll leiðtogi helstu menningarstofnana landsins m.a. leikhússtjóri Borgarleikhússins, Leikfélags Akureyrar og Gamanleikhússins sem hann stofnaði 14 ára. Magnús Geir var Útvarpsstjóri RÚV um árabil og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir bæði framúskarandi listrænt auga sem og sjálfbæran fjárhagslegan rekstur þeirra félaga sem hann hefur leitt. Í Góðu fólki deilir Magnús m.a. með okkur sinni framtíðarsýn, lykilformúlum, flækjustigum og virði fjölbreytileika.

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    45 Min.
  • Gott fólk - Guðfinna
    Dec 26 2022

    Guðfinna Sesselja Bjarnadóttir lagði grunninn að stofnun Háskólans í Reykjavík og var fyrsti rektor skólans. Hún sat á Alþingi um árabil og er forstjóri Lead Consulting auk þess að taka þátt í spennandi uppbyggingu MagnaVita verkefnisins í HR. Guðfinna hefur unnið með frumkvöðlum og forgöngumönnum beggja megin Atlantshafsins - og lagt grunninn að menningu árangurs fjölda vinnustaða. Einstök innsýn Guðfinnu í viðskipti, vísindi og mannfólk er verðmætt veganesti fyrir okkur öll.

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    42 Min.