Gott fólk með Guðrúnu Högna Titelbild

Gott fólk með Guðrúnu Högna

Gott fólk með Guðrúnu Högna

Von: Guðrún Högnadóttir
Jetzt kostenlos hören, ohne Abo

Über diesen Titel

Gott spjall við reynda leiðtoga - hver á sínu sviði - sem varpar ljósi á öfluga stjórnun, vaxandi vinnustaði, bestu ráð, góðar sögur, súra og sæta sigra og lexíur og lífsins speki valdra viðmælenda Mannlegt, skemmtilegt, lærdómsríkt samtal um stjórnun, forystu, fólk og rekstur.Copyright 2022 All rights reserved. Management & Leadership Ökonomie
  • Gott fólk - Einar
    Jun 28 2023

    Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingingur rekur Veðurvaktina, sem býður upp á veðurþjónustu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og opinbera aðila í ráðgjöf og úrvinnslu flestu því sem viðkemur veðri og veðurfari. Einar er stofnandi Bliku og hefur um árabil frætt landsmenn og gesti okkar um veður og veðurfar. Eftir 16 ára starf hjá Veðurstofunni fór hann í eigin rekstur og er með afar skemmtilega innsýn í svokallað Giggumhverfi og samfélagslega ábyrgð. Hvernig stjórnar þú þínu innra veðri og virkjar vinda deilihagkerfisins – Njótið Gott fólk!

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    25 Min.
  • Gott fólk - Cheryl
    Mar 28 2023

    Cheryl Smith hefur starfað með leiðtogateymum í yfir 15 löndum í fimm heimsálfum. Hún er frumkvöðull á sviði markþjálfunar og hefur vottað vel á þriðja hundrað íslenskra markþjálfa við HR í um 40 heimsóknum til Íslands. Hún er einn af 50 fyrstu markþjálfum til að öðlast MCC viðurkenningu ICF (International Coach Federation). Cheryl starfað við markaðssetningu og stjórnun hjá IBM og vann hörðum höndum við að markaðsetja og selja fyrstu PC tölvurnar. Hún hefur þróað og þjálfað á stjórnendanámskeiðum um árabil og nýtir víðtæka reynslu úr viðskiptalífi, háskólastarfi, ferðalögum og samtölum við fólk um allan heim. Cheryl er með meistaragráðu í stjórnun og þjálfun (e. Leadership and Training) frá Royal Roads háskólanum í Victoria, Kanada. Hún er jafnframt kennari við háskólann. Cheryl var aðstoðarforstjóri hjá Corporate Coach U og stofnaði Leadscape Learning Inc.

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    33 Min.
  • Gott fólk - Ingibjörg Ösp
    Mar 14 2023

    Ingibjörg Ösp hefur látið sig varða og haft veruleg áhrif á grunnstoðir íslensks samfélags í ábyrgðarstörfum sínum á sviði samkeppnishæfni, mennta- og mannauðsmála hjá Samtökum atvinnulífisins og Samtökum iðnaðarins. Framlag hennar sem ráðgjafi mótast meðal annars af víðtækri stjórnunarreynslu sem framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar, Menningarhússins Hofs og Leikfélags Akureyrar. Ingibjörg brennur fyrir mati á raunfærni og lífstíðarlærdómi og mikilvægu hlutverki atvinnulífsins í þróun hæfni og nýrrar þekkingar.

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    39 Min.

Das sagen andere Hörer zu Gott fólk með Guðrúnu Högna

Nur Nutzer, die den Titel gehört haben, können Rezensionen abgeben.

Rezensionen - mit Klick auf einen der beiden Reiter können Sie die Quelle der Rezensionen bestimmen.