Hið yfirnáttúrulega Titelbild

Hið yfirnáttúrulega

Hið yfirnáttúrulega

Von: Ghost Network®
Jetzt kostenlos hören, ohne Abo

Saisonale Sparangebote | 0,99 € pro Monat für die ersten 3 Monate

Danach 6,99 €/Monat. Bedingungen gelten. Monatlich kündbar.
Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega. Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum. Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls. Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.Ghost Network® Politik & Regierungen
  • 127. Andlegt trúnó. Chakra dans og margt fleirra
    Oct 26 2026

    Í þætti dagsins ræðum við um ferðalag okkar í gegnum orkustöðvarnar 7.

    Marta Eiríks bauð okkur í 4 tíma orkustöðva/Chakra dans á dögunum. Við mættum upp í Hugarhlýju sem er æðisleg aðstaða sem Svava Bjarnadóttir rekur og fengum þessa frábæru dans upplifun.

    Við dönsuðum í gegnum orkustöðvarnar 7 og fengum allskyns upplifanir með hverri og einni orkustöð.

    Í þættinum förum við einnig yfir hvað við höfum upplifað eftir þessa mögnuðu reynslu og segjum frá aðsendri sögu sem okkur fannst alveg hreint mögnuð!

    Við elskum að heyra frá ykkur elsku nornafjölskyldunni okkar <3

    Hægt er að hlusta á þáttinn í fullri lengd á www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    10 Min.
  • 126. Draugagangur og næmnin er að aukast.
    Oct 19 2026

    Hvað ætli sé í gangi hjá Selmu núna? Það hafa verið skítnir hlutir að gerast hjá henni sem er ekki hægt að útskýra. Ætli hún sé að opnast?

    Þegar næmnin eykst og fólk fer að heyra hluti sem eiga sér ekki sýnilegar útskýringar og breytist skynjunin gjarnan í svokallaða miðilsheyrn, sem getur birst með tvennum hætti. Annars vegar er um að ræða ytri heyrn, þar sem hljóðin virðast koma beint úr líkamlega umhverfinu, eins og fótatak á hæðinni fyrir ofan, bank í veggi, hvísl í tómu herbergi eða hljóð líkt og hlutir séu færðir til. Hins vegar getur hún birst sem innri heyrn, þar sem raddirnar hljóma inni í höfðinu en koma manni samt algjörlega á óvart. Þetta birtist oft sem skýr orð, eigið nafn kallað í hálfsvefni, eða heilu setningarnar sem koma eins og utanaðkomandi hugsanir með öðrum raddblæ en manns eigin innri rödd. Þessar sveiflur eru taldar eðlilegur hluti af því að vera næmur.

    Hægt er að þjálfa þessa skynjun og er hluti af þjálfuninni er að byggja upp traust á eigin skynjun. Sniðugt er að halda dagbók og skrifa niður allt sem þú heyrir eða skynjar, jafnvel þótt það sem þú heyrir eða skynjar virðist ekki meika sense. Með tímanum fer fólk að sjá mynstur, og þegar upplýsingar sem heyrðust reynast síðar eiga við rök að styðjast, styrkist hæfileikinn.

    Komdu í áskrift og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar:

    www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    10 Min.
  • 125. Hin yfirnáttúrulega Geimsýra
    Oct 10 2026

    Áskriftarþátturinn kemur út aðeins fyrr en vanalega þar sem við ætlum að vera með samruna Hins yfirnáttúrulega og Geimsýrunnar einu sinni í mánuði!

    Við og Geimsýran sameinum krafta okkar og ræðum um allt milli himins og jarðar. Gunnar Dan vinur okkar er orðinn góðvinur þáttarins og er hann alger sérfræðingur í Ufo málaflokknum enda búinn að gefa út tvær bækur tengt Ufo.

    Við snertum á allskonar málefnum í flæði og erum að reyna að komast að því hvernig þessi heimur virkar og allt þetta sem tengist hinu yfirnáttúrulega og óútskýrða.

    Komdu í áskrift og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar:

    www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    16 Min.
adbl_web_anon_alc_button_suppression_t1
Noch keine Rezensionen vorhanden