Kokkaflakk í eyrun Titelbild

Kokkaflakk í eyrun

Kokkaflakk í eyrun

Von: Hljóðkirkjan
Jetzt kostenlos hören, ohne Abo

Über diesen Titel

Ólafur Örn spjallar við fólk sem er eitthvað að fást við mat eða drykk, eða hefur mikinn áhuga á mat eða drykk.Copyright 2020 All rights reserved. Kochen Kunst Lebensmittel & Wein
  • #33 Georg Leite - Goggi á Kalda
    Apr 27 2021
    Gestur Kokkaflakks að þessu sinni er Georg Leite sem á meðal mjög stórs hóps fólks er betur þekktur sem Goggi á Kalda. Við ræðum bransann, Covid lokanir og að þó þær séu erfiðar fyrir veitingabransann leynist kannski eitthvað jákvætt í þeim. Við ræðum ljósmyndarann Georg, leikarann Georg Brasilíumanninn Georg og alla þá ólíku hatta sem hann ber. Mjög skemmtilegt! Þessi þáttur er síðasti þáttuinn í fyrstu seríu af Kokkaflakki í eyrun og við það tilefni vil ég þakka kærlega frábær viðbrögð og hlakka til að koma aftur síðar með aðra seríu.
    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    1 Std. und 28 Min.
  • #32 Anna Sigríður Ólafsdóttir - Um matvendni
    Apr 20 2021
    Gestur þáttarins í þetta sinn er næringarfræðingurinn og vísindakonan Anna Sigríður Ólafsdóttir. Við áttum afar áhugavert spjall um matvendni barna og tengsl matvendni við ADHD og einhverfu sem hún hefur verið að rannsaka í dálítinn tíma. Hún stóð fyrir bragðlaukaþjálfun fyrir matvönd börn, námskeið sem ég fór á með son minn og var frábært! Við ræddum þetta allt sem og auðvitað líka nýju sjónvarpsþáttaröðina sem hún er að gera fyrir RÚV og heitir Nærumst og njótum. Mjög áhugavert og skemmtilegt.
    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    59 Min.
  • #31 Óli og Alba - Forsetaspjall um vín
    Apr 13 2021
    Við Alba erum mætt aftur eins og lofað var með þátt um vín sem heitir „Forsetaspjall um vín“ vegna þess að jú, Alba er eins og frægt er orðið forseti Vínþjónasamtaka Íslands og ég fyrrverandi. Spjallið fór út um víðan völl að vanda. Við ræðum um Bordeaux og vín sem hefur ferðast út í geim. Við tölum einnig um Austurríki, ensk freyðivín og svo miklu miklu fleira. Mjög gaman að vanda.
    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    1 Std. und 6 Min.
Noch keine Rezensionen vorhanden