Trivíaleikarnir Titelbild

Trivíaleikarnir

Trivíaleikarnir

Von: Daníel Óli
Jetzt kostenlos hören, ohne Abo

Über diesen Titel

Trivíaleikarnir færa pub quiz stemninguna beint heim til þín, hvar sem þú ert og hvað sem þú ert að gera. Tvö tveggja manna lið etja kappi í léttri og skemmtilegri spurningakeppni þar sem spurningar um allt milli himins og jarðar dynja á keppendum. Hvort sem þú elskar pub quiz og spurningaspil eða veist varla hvað Gettu Betur er, að þá er eitthvað fyrir þig í Trivíaleikunum. Hlustaðu, hlæðu með okkur og lærðu eitthvað nýtt í leiðinni. Fáðu þrjá þætti í hverjum mánuði með áskrift á Patreon: https://www.patreon.com/trivialeikarnirDaníel Óli Sozialwissenschaften
  • 10P. Rottan í horninu (Patreon þáttur)
    Feb 19 2026

    Vegna gríðarlegra anna spurningahöfundar að þá hefur þáttur mánaðarins tafist um nokkra daga - við vildum þó brúa aðeins bilið fyrir ykkur kæru hlustendur og leyfum ykkur því að heyra einn gamlan Patreon þátt frá því í haust í millitíðinni. Njótið vel kæru hlustendur og endilega kíkið á Patreon hjá okkur, þar getið þið fengið tugi þátta fyrir litla 8$.

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    1 Std. und 33 Min.
  • 52. 2000's-leikarnir (þemaþáttur)
    Jan 14 2026

    Fimmtugasti og annar þáttur Trivíaleikanna og þið vitið hvað það þýðir, þemaþáttur! Að þessu sinni varð fyrsti áratugur 21. aldarinnar fyrir valinu eða 2000's þema. Tvö kunnugleg lið, Arnór Steinn og Marín Eydal kepptu við Jóni Hlífari og Kristjáni í svakalegum 2000's slag þar sem Britney Spears, MP3 spilarar og DVD diskar komu víða við sögu. Hver var Region kóði Evrópu á DVD diskum? Hvaða goðsagnakennda lag Backstreet Boys var fyrsta lagið sem niðurhalað var af Napster? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.

    Keppendur: Marín Eydal, Arnór Steinn, Kristján og Jón Hlífar.

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    1 Std. und 50 Min.
  • 51. Formalínið hans Gísla Marteins
    Dec 14 2025

    Já það er komið að nýjum þætti. Að þessu sinni skellti Arnór Steinn sér í dómarasætið og okkar eigin Ingi & Haraldur Örn tóku á móti glænýjum keppendum Þorra Líndal & Andreu í svakalegum þætti. Úr hvaða ávöxt eru sveskjur myndaðar? Hvaða knattspyrnulið hét upprunalega Newton Heath? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.

    Keppendur: Ingi, Haraldur Örn, Þorri Líndal og Andrea.

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    1 Std. und 12 Min.
Noch keine Rezensionen vorhanden