Svellið Titelbild

Svellið

Svellið

Von: Hljóðkirkjan
Jetzt kostenlos hören, ohne Abo

Über diesen Titel

Hlaðvarpið Svellið kafar ofan í þær áskoranir sem karlmenn og drengir standa
frammi fyrir í nútímasamfélagi. Sem samfélag höfum við öll hagnast á jafnrétti;
menntunarstig þjóðarinnar er hátt, atvinnuþátttaka mikil og hagvöxtur hefur aukist.
En hvað mætti betur fara? Leikkonan og þúsund‏þjalasmiðurinn ‏Birna Pétursdóttir
fær til sín frábært fólk úr öllum áttum til að ræða alls konar: föðurhlutverkið, grín og
gamanmál, íþróttir, geðheilsu og hvernig maður nær árangri í lífinu.

Miðað við skautunina sem er í samfélaginu, þá er mikilvægara en nokkru sinni að
finna jafnvægið - og við ætlum að hætta okkur út á svellið í þeim tilgangi.

Stjórn upptöku: Baldur Ragnarsson
Þáttastjórnandi: Birna Pétursdóttir
Leikstjórn myndbands: Steinar Júlíusson
Grafík: Friðrik Snær Friðriksson
Tónlist: Einar Tönsberg (Eberg)
Skipulag: UN Women á Íslandi

Copyright 2026 All rights reserved.
Sozialwissenschaften
  • #5 „Of feit fyrir mig“
    Feb 20 2026

    Í þessum loka‏þætti Svellsins mæta grínistarnir Sveppi og Bolli Már Bjarnason og þ‏jóðfræðingurinn Anna Margrét Hrólfsdóttir í hljóðverið og ræða grín. Má gera grín að öllu eða er sumt „off limits“? Húmor hefur lengi verið notaður til að auðvelda umræðu um erfið og alvarleg málefni. Hins vegar getur húmor líka verið leið til að forðast að takast á við alvarleg málefni eða hreinlega notað í þeim tilgangi að niðurlægja.

    Í þættinum ræða þau gott grín, misheppnað grín, úrelt grín, klefamenningu, piss og ….. hárígræðslur.

    Svellið er afrakstur rýnihópavinnu sem UN Women á Íslandi lagðist í með aðstoð sérfræðinga árið 2024 og hlaut styrk frá félagsmála- og vinnumarkaðsráðuneytinu sama ár. Stjórn upptöku: Baldur Ragnarsson Þáttastjórnandi: Birna Pétursdóttir Leikstjórn myndbands: Steinar Júlíusson Grafík: Friðrik Snær Friðriksson Tónlist: Einar Tönsberg (Eberg) Skipulag: UN Women á Íslandi

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    1 Std. und 6 Min.
  • #4 „Slá í gegn“
    Feb 13 2026

    Birna ræðir við Magnús Harðarson, forstjóra Nasdaq Iceland, og Þráin Frey Vigfússon, kokk og eiganda veitingastaðarins ÓX, um „skill building“ og hvernig maður nær árangri í lífinu. Hvað er árangur? Erum við kannski enn að skilgreina árangur samkvæmt löngu úreltum gildum? Á hugmyndin um „hús, barn og bíl“ enn þá‏ við þegar sífellt færri hafa kost á að komast í eigið húsnæði og fleiri og fleiri kjósa að eignast ekki börn? Telst það árangur að lifa hamingjusömu lífi eða mælist hann aðeins í auði og völdum? Hvaða hæfileika er mikilvægt að ungt fólk ‏þrói með sér ‏ef það ætlar að ná árangri á vinnumarkaði?

    Þetta og meira til verður krufið til mergjar í ‏þætti dagsins.

    Svellið er afrakstur rýnihópavinnu sem UN Women á Íslandi lagðist í með aðstoð sérfræðinga árið 2024 og hlaut styrk frá félagsmála- og vinnumarkaðsráðuneytinu sama ár. Stjórn upptöku: Baldur Ragnarsson Þáttastjórnandi: Birna Pétursdóttir Leikstjórn myndbands: Steinar Júlíusson Grafík: Friðrik Snær Friðriksson Tónlist: Einar Tönsberg (Eberg) Skipulag: UN Women á Íslandi

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    47 Min.
  • #3 „Geta pabbar ekki grátið“
    Feb 6 2026

    Arnar Dan Kristjánsson leikari, Axel Ingi Árnason tónskáld, og Áslaug Kristjánsdóttir sálfræðingur mæta í hljóðverið til Birnu og Baldurs til að ræða alla anga föðurhlutverksins. Sagt er að allt breytist við ‏það að verða foreldri; sambandið við ‏eigin foreldra, sambandið við makann og oft neyðist fólk til ‏þess að horfast í augu við eigin bresti samhliða barnauppeldinu.

    Í ‏þættinum eru andstæðurnar í kringum föðurhlutverkið ræddar;‏ hefðbundnar væntingar samfélagsins til feðra og kröfur nútímans um aukna mýkt og þátttöku. En ‏þau ræða líka rómantík, kynlíf, fótbolta og keppnisskap og velta fyrir sér hvort foreldrar nútímans séu mögulega alltof duglegir.

    Svellið er afrakstur rýnihópavinnu sem UN Women á Íslandi lagðist í með aðstoð sérfræðinga árið 2024 og hlaut styrk frá félagsmála- og vinnumarkaðsráðuneytinu sama ár. Stjórn upptöku: Baldur Ragnarsson Þáttastjórnandi: Birna Pétursdóttir Leikstjórn myndbands: Steinar Júlíusson Grafík: Friðrik Snær Friðriksson Tónlist: Einar Tönsberg (Eberg) Skipulag: UN Women á Íslandi

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    1 Std. und 16 Min.
Noch keine Rezensionen vorhanden