• Mæðginin Maya Jill Einarsdóttir og Friðrik Agni Árnasson - Maya er fyrsta ættleidda barnið á Íslandi og Friðrik gerði þættina um móður sína sem heita; Ugla sat á kvisti, móðuróður
    May 4 2024

    Friðrik Agni Árnasson og Maya Jill Einarsdóttir

    Maya er fyrsta ættleidda barnið sem kom til Íslands frá Indlandi árið 1969 og sonur hennar Friðrik gerði útvarpsþætti um söguna hennar Mayu en þættirnir eru tveir og heita: Ugla sat á kvisti: Móðuróður

    Þættirnir segja alla söguna hennar Mayu og gerir Friðrik þetta lista vel með því að flétta inn sögu ömmu sinnar inn í sögu Mayu. En Maya var ættleitt um 2 og hálfs árs gömul til íslands og fekk móðir hennar myndir af þremur stúlkum og átti hún að velja eina af þeim til að ættleiða…. Móðirin gat augljóslega ekki valið og gerði hún blindandi, ugla sat á kvisti , setti myndina sem varð fyrir valinu blindandi í umslag og sendi til Indlands og þannig varð Maya dóttir hennar.

    En um 10 ára aldurs flutti móðir hennar úr landi og eftir sat hún ein með föður sínum, móðurlaus, og við tóku erfiðir tímar.

    Í þessum þætti heyrum við söguna hennar Mayu. við heyrum um erfið uppvaxtar ár hennar. Við tölum um tilvonandi ferðalag þeirra og fjölskyldunnar til Indlands og áætlað ferðalag þeirra og fjölskyldu að fara til Indlands og klára þáttaröðina með stæl.

    við ræðum einnig um ættleiðingarferlið hans Friðriks þar sem hann og maðurinn hans eru í miðju umsóknarferli.

    Linkur á söfnuna þeirra á karolinafound

    https://www.karolinafund.com/project/view/6232

    Linkur á þættina Ugla sat á kvisti; móðuróður

    https://www.ruv.is/utvarp/spila/ugla-sat-a-kvisti-modurodur/32478

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    1 Std. und 53 Min.
  • Fanney Ýr Gunnlaugsdóttir - Ættleidd frá Sri lanka
    May 4 2024

    Fanney Ýr Gunnlaugsdóttir - Er ættleidd frá Sri Lanka

    En árið 2021 hóf hún leitina af uppruna sínum og sú saga er hreint út sagt ótrúleg.

    Eftir tvegga vikna leit fannst blóðmóðir hennar og hafa þær verið í góðu sambandi alveg síðan þá, fyrst í gegnum síma og facetime og seinna fór hún í ferðalagið til Indlands og hitti blóðfjölskyldu sína.

    Fanney er móðir og býr á Akranesi ásamt eigin manni sínum. Hún sarfar

    à Heilbrigðistofnun Akranes og einnig sem naglafræðingur og hún Stundar nám í næringarfræði.

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    1 Std. und 17 Min.
  • Sigurður Hólm Gunnarsson - ráðgjafi hjá Sjónarhóli - talar um einelti, Sjónarhól, baráttuna við þunglyndi, ofsakvíða ofl.
    Mar 11 2024

    Sigurður var lagður í mikið og langvarandi einelti í grunnskóla, á þeim tímum var hugtakið einelti varla til og lítið sem ekkert gert í þeim málum. Hann hefur notað sína erfiðu lífreynslu til þess að hjálpa öðrum í gegnum tíðina, en afleiðingar eineltis fylgja manni ævilangt. Hann gaf út heimildarmyndina Einelti helvíti á jörðu árið 2002 sem notuð er ennþá sem fræðsluefni í skólum.

    Sigurður er menntaður Iðjuþjálfi og vann lengi með fólki sem glímdi við geðrænan vanda.

    Í dag vinnur Sigurður sem ráðgjafi hjá Sjónarhóli og er hann einnig með sinn eigin rekstur undir nafninu “allir sáttir” þar sem hann býður upp á ráðgjöf og sáttamiðlun.

    Sigurður hefur í mörg ár verið að glíma við þunglyndi og svo seinna á lífsleiðinni ofsakvíða.

    Sigurður er athafnastjóri hjá siðmennt, hann er þriggja barna faðir, hann er opinn, einlægur og hjartahlýr.

    www.allirsattir.is

    www.hugvikkandi.is

    https://skodun.is/einelti/

    https://skodun.is/

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    2 Std. und 4 Min.
  • Gunnar Dan Wiium og konan hans ættleiddu dóttur sína frá Indlandi í gegnum Danska ættleiðingarstofu
    Mar 9 2024

    Gunnar og konan hans bjuggu í Danmörku og fóru í gegnum ættleiðingarferlið þar í landi. Þau ættleiddu dóttur sína frá Indlandi árið þegar hún var um þriggja ára gömul.

    Í þættinum ræðum við um söguna þeirra, ferðalagið til Indlands og þær hindranir og áskoranir sem áttu sér stað í ferðalaginu. Við tölum um baráttu hans við fínkisjúkdóm, Breytingaskeið karla og kanóbíóða olíur til að styðja við taugakerfið og margt fleira.

    Gunnar er smiður í grunninn og vinnur í Handverkshúsinu. Hann er með hlaðvarpið Þvottahúsið og er meðlimur í hamfélaginu á Íslandi.

    Þvottahúsið hlaðvarp:

    https://podtail.com/en/podcast/thvottahusi/

    www.hampfelagid.is

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    2 Std. und 2 Min.
  • Svava Brooks - Stofnandi Blátt áfram samtök um forvarnir gegn kynferðisofbeldi á börnum, hún er TRE leiðbeinandi og ráðgjafi.
    Mar 1 2024

    Svava Brooks er löggiltur TRE® þjálfari þar sem hún vinnur með líkamann, taugakerfið og áföll. Hún er einnig Reiki heilurnar meistari og Yoga kennari.

    Svava átti erfiða æsku, hún lennti í kynferðisofbeldi að hálfu stjúpföður sínum. Hún segir okkur sögu sína og hvernig hún nýtti þessa hræðilegu lífsreynslu til góðs með því að stofna samtökin Blátt áfram með því markmiði að vekja athygli á kynferðisofbeldi og fræða fólk um hvaða afleiðingar kynferðisofbeldi getur haft á börn ásamt því að finna leiðir sem hugsanlega gæti komið í veg fyrir að börn lendi í slíku ofbeldi.

    Hún segir okkur frá TRE meðferðinni , Tre stendur fyrir (tension stress and trauma release)

    Svava hefur verið með fyrirlestra og fróðleik í mörg ár og hún hefur gefið út tvær bækur sem fást á Amazon.

    TRE® (Tension, Stress & Trauma Release) er leið til að hjálpa líkamanum að losa um spennu, streitu og áföll sem liggja djúpt í vöðvum líkamans. Leiðin er þróuð af Dr. David Berceli, PhD til að virkja náttúruleg viðbrögð líkamans á öruggan hátt með því að leyfa líkamanum að skjálfa eða titra þannig að losni um vöðvaspennu og taugakerfið róist. Með því að virkja þessi náttúrulegu viðbrögð líkamans, þ.e. með því að skjálfa og titra, í öruggu og stýrðu umhverfu, er verið að hvetja líkamann til þess að ná aftur fyrra jafnvægi, eða að nálgast slökun eftir langvarandi spennu.

    https://www.svavabrooks.com/

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    1 Std. und 35 Min.
  • Hrafnhildur Ming Þórunnardóttir - er ættleidd frá kína og segir sína sögu
    Feb 29 2024

    Hrafnhildur Ming Þórunnardóttir

    Var ættleidd frá Kína þegar hún var aðeins 14 mánaða gömul. Í dag er hún 21 árs og er að læra Íslensk fræði við háskóla Íslands

    Í þættinum förum við út um allar trissur, hún segir sína ættleiðingarsögu og uppruna, æskuárin, tölum um fordóma á íslandi og margt fleira

    Hrafnhildur er háskólanemi, ótrúlega einlæg og skemmtileg

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    1 Std. und 6 Min.
  • Berglind Ósk Þórólfsdóttir - segir sína sögu
    Feb 29 2024

    Berglind Ósk Þórólfsdóttir og Friðrik maðurinn hennar hafa verið á biðlista eftir barni frá Tékklandi í nokkurn tíma. Þau eiga tvö börn fyrir og hefur barneignarferlið ekki verið dans á rósum.

    Þau hafa því miður átt átakalega reynslu á biðlista í Tékklandi, þau voru pöruð við barn og rétt áður en þau áttu að fara út til Tékklands að sækja draumabarnið en þá var pörunin tekin tilbaka. ástæðan fyrir því var sú að þau komust að því að hún væri ólétt, komin aðeins nokkrar vikur á leið og Tékkland þótti það ekki vera barninu fyrir bestu og drógu því pörunina tilbaka.

    Þrátt fyrir þetta áfall þá eru þau þrautseig og staðráðin í því að halda áfram í ættleiðingar ferlinu og eru þau komin aftur á biðlista hjá Tékklandi.

    Við ræðum um allt þetta, stöðuna á ættleiðingum í heiminum í dag og margt fleira.

    Berglind starfar sem Forstöðumaður bókasafns og upplýsingamiðstöðvar fjölbrautaskóla vesturlands á Akranesi og hún er móðir tveggja yndislegra barna.

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    1 Std. und 6 Min.
  • Jónína Sigurðardóttir - uppeldisfræðingur og menntunarfræðingur - Við ræðum um skólaforðun ofl.
    Feb 9 2024

    Jónína Sigurðardóttir er verkefnastjóri á menntavísindasviði háskóla íslands

    Hún er uppeldis og menntunarfræðingur og hefur m.a. Starfað sem ráðgjafi fyrir börn og fjölskyldur vegna skólaforðunar.

    Í þættinum ræðum við um skólaforðun og leiðir til aðstoðar í þeim efnum. Við tölum um forvarnastarf ungmenna, kulnun, leiðir til betrunnar og margt fleira.

    Jónína er geislandi gleðisprengja, hún er spunaleikari og móðir.

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    1 Std. und 25 Min.