#2 „Gerum okkar besta“
Artikel konnten nicht hinzugefügt werden
Der Titel konnte nicht zum Warenkorb hinzugefügt werden.
Der Titel konnte nicht zum Merkzettel hinzugefügt werden.
„Von Wunschzettel entfernen“ fehlgeschlagen.
„Podcast folgen“ fehlgeschlagen
„Podcast nicht mehr folgen“ fehlgeschlagen
-
Gesprochen von:
-
Von:
Über diesen Titel
Kempurnar Gunnar Jarl Jónsson, Kári Garðarsson og Sigrún Agatha Árnadóttir mæta í settið til Birnu og Baldurs og fjalla um mál málanna: íþróttir! Margir karlmenn og drengir líta á þjálfara sína sem fyrirmyndir í lífinu. Íþróttir hafa líka verið nefndar sem góður grunnur fyrir börn til að læra samvinnu og samstöðu á jafningjagrundvelli. En þegar takmarkið er alltaf sigur, hvað verður þá undir í staðinn?
Má sýna mýkt á vellinum? Hvað einkennir góðan leikmann? Hvað í ósköpunum er 80/20 reglan? Öllum þessum spurningum verður svarað í þættinum.
Svellið er afrakstur rýnihópavinnu sem UN Women á Íslandi lagðist í með aðstoð sérfræðinga árið 2024 og hlaut styrk frá félagsmála- og vinnumarkaðsráðuneytinu sama ár. Stjórn upptöku: Baldur Ragnarsson Þáttastjórnandi: Birna Pétursdóttir Leikstjórn myndbands: Steinar Júlíusson Grafík: Friðrik Snær Friðriksson Tónlist: Einar Tönsberg (Eberg) Skipulag: UN Women á Íslandi
