Þrastarskeggur Titelbild

Þrastarskeggur

Reinhören
0,00 € - kostenlos hören
Aktiviere das kostenlose Probeabo mit der Option, monatlich flexibel zu pausieren oder zu kündigen.
Nach dem Probemonat bekommst du eine vielfältige Auswahl an Hörbüchern, Kinderhörspielen und Original Podcasts für 9,95 € pro Monat.
Wähle monatlich einen Titel aus dem Gesamtkatalog und behalte ihn.

Þrastarskeggur

Von: Grimmsbræður, Theódór Árnason - translator
Gesprochen von: Árni Beinteinn Árnason
0,00 € - kostenlos hören

9,95 € pro Monat nach 30 Tagen. Monatlich kündbar.

Für 0,95 € kaufen

Für 0,95 € kaufen

Über diesen Titel

Einu sinni var kóngur sem vildi finna biðil fyrir fögru dóttur sína. Kóngsdótturinni leist ekkert á yngismennina sem faðir hennar leiddi fram, fann þeim allt til foráttu og gerði grín að þeim. Kónginum varð þá nóg um og krafðist þess að hún skyldi giftast fyrsta manninum sem bæri að garði, hver sem hann væri. Sá reyndist vera fátækur tónlistarmaður sem bjó í litlu, hrörlegu koti rétt fyrir utan konungshöllina. Kóngsdóttirin, sem nú þurfti að sinna húsverkum og þjóna bónda sínum, dauðsá nú eftir því að hafa hafnað öllum ríku biðlunum. Sagan endar þó ekki hér því fátæki tónlistarmaðurinn er ekki allur þar sem hann er séður.

Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.

Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.

©2022 SAGA Egmont (P)2022 SAGA Egmont
Märchen & Mythen
Noch keine Rezensionen vorhanden