Auðnast Titelbild

Auðnast

Auðnast

Von: Ghost Network®
Jetzt kostenlos hören, ohne Abo

Das größte Angebot der Saison | 0,99 € pro Monat für die ersten 3 Monate + 15 € Audible-Guthaben

Danach 6,99 €/Monat. Bedingungen gelten. Monatlich kündbar.
Auðnast er hlaðvarp um heilsu, samskipti og menningu í vinnu og lífi. Við ræðum það sem raunverulega mótar líðan fólks: tengsl, mörk, vald, ábyrgð, streitu, samskipti, tilfinningar og sálfræðilegt öryggi – bæði á vinnustað og í einkalífi. Í hverjum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna, málefni sem spretta beint úr þeirra daglegu störfum í vinnuvernd, meðferð og ráðgjöf. Samtölin byggja á faglegri þekkingu, klínískri reynslu og rannsóknum – en líka á raunverulegum aðstæðum sem fólk þekkir úr eigin lífi. Auðnast er fyrir þau sem vilja: - skilja eigin líðan og samskipti betur - takast á við krefjandi aðstæður af ábyrgð - byggja heilbrigðari vinnustaði og tengsl - sinna sjálfsvinnu með uppbyggilegum hætti Ragnhildur er klínískur sálfræðingur, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd. Hrefna Hugosdóttir er hjúkrunar- og fjölskyldufræðingur, sérfræðingur í vinnuvernd og sáttamiðlari. Saman stofnuðu þær Auðnast árið 2014 með það að markmiði að efla heilsu, öryggi og velsæld fólks – með áherslu á sálfélagslegt öryggi, sjálfbærni og heilbrigð samskipti.Copyright 2026 Ghost Network® Beziehungen Hygiene & gesundes Leben Management & Leadership Seelische & Geistige Gesundheit Sozialwissenschaften Ökonomie
  • Uppsagnir og sálfélagsleg skuld á vinnustöðum
    Nov 2 2026

    Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna hvað gerist þegar fólki fækkar á vinnustað en verkefnin, ábyrgðin og væntingarnar standa eftir. Þær kynna til leiks hugtakið sálfélagsleg skuld og fara yfir algengar mýtur um uppsagnir. Að lokum fara þær yfir spurningar sem vinnustaðir þurfa að geta svarað þegar uppsagnir hafa átt sér stað.

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    38 Min.
  • þegar gervigreindin mætir í vinnuna, hvað verður um okkur?
    Oct 2 2026

    Ragnhildur og Hrefna ræða hvað gerist innra með fólki þegar gervigreind kemur inn á vinnustaðinn. Sama breyting getur vakið létti og forvitni hjá einum en óöryggi og ótta hjá öðrum. Þær skoða einnig hvernig óvissa um framtíð starfsins getur haft áhrif á faglega sjálfsmynd, hvers vegna fólk þarf að upplifa að það hafi áfram rödd og áhrif og hvað gerist þegar gervigreind verður ráðgjafi sem er alltaf sammála okkur. Áherslan er á sálfélagslegt öryggi, mannleg samskipti og hlutverk stjórnenda í breytingum sem enginn sér alveg fyrir endann á.

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    41 Min.
  • Erfið samskipti og áhrif þeirra
    Sep 15 2026

    Erfið samskipti eru ekki bara óþægileg heldur líka orkufrek. Við skoðum ólíkar útgáfur af erfiðum samskiptum og hvernig þau hafa áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Við rýnum í rannsóknir og kynnum gagnleg ráð þegar samskipti reyna á.

    Mehr anzeigen Weniger anzeigen
    34 Min.
adbl_web_anon_alc_button_suppression_t1
Noch keine Rezensionen vorhanden